Jólalög
Margrét samdi nokkur jólalög sem hún raddsetti flest með einföldum hætti fyrir Skólakór Fossvogsskóla. Einhver þeirra hafa einnig verið gefin út á prenti. Jólalögin urðu fljótt órjúfanlegur partur af jólahaldi stórfjölskyldunnar og var barnaskaranum gjarnan raðað upp í kóruppstillingu til að flytja þau í röddum með fullorðna fólkinu sem tók undir.

