Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Bærinn minn
Mér finnst ég vera fangi, oft á tíðum,
og fagna yfir hverri stund sem dvín,
og kysi helst með aftanblænum blíðum
að berast heim í æskulöndin mín.
Ég reika í huga vítt á vetrarkvöldum
og venjulega staðar numið fæ
á lágri strönd hjá úthafsbláum öldum
í óskadýrð við lítinn moldarbæ.
Það væri sælast fjarri heimsins harmi,
við hafsins tign og dýrð, að una sér
og hallast mega að blíðrar móður barmi
er brandur ömurleikans hjartað sker.
Ég vildi ég gæti björgum lífsins bifað
og brotist yfir örlaganna hjarn
og síðan frjáls við litla bæinn lifað,
leikið mér og verið alltaf barn.
Kristján frá Djúpalæk
