Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Alli Palli og Erlingur

Alli Palli og Erlingur þeir ætla’ að fara’ að sigla,
vantar vænan bát en vita afbragðs ráð.
Þeir fundu gamalt þvottafat sem farið var að mygla,
sigla út á sjó og syngja hæ, hæ, hó.
Seglið var úr afar stórum undirkjól,
mastrið það var skófluskaft og skútan lak og valt.
Og hæ og hó og hæ og hí.
En skítt með það við skulum komast fyrir því.

Alli vildi, ólmur, til Ameríku fara,
en Palli sagði: „Portúgal er prýðis land.“
„Ertu frá þér Palli, nú ætlum við að spara,
siglum beint og stefnum beint á Grænlandssand.“
„Ertu frá þér Erlingur, þú ert að fara í kaf,
hatturinn þinn fýkur af og feykist út á haf.“
Og hæ og hó og hæ og hí.
En skítt með það við skulum komast fyrir því.