Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Arabadrengurinn

Það var í næturlestinni í Kairó
sem ég hitti Arabadreng
sem síðan aldrei úr huga mér hverfur
ég elska hann.

Hann sagði sögur af úlfalda sínum
og söng um vatnið úr vinjum og ám.
Hann brá upp mundum með töfrandi línum,
ég elska hann.

Það var vor og sól,
fuglar sungu í kór
er ég hitti hann,
við fórum niður að Níl,
við þurftum engan bíl,
aðeins úlfalda.

Hann fór og sýndi mér píramída
og til gjafa Shahara sand
og augun lýstu í steinana hvíta
ég elska hann.

Á Nílarbökkum við gengum og sungum
um lífsins gleði, fegurð og ást
ég fylltist ennþá framandi tungu
ég elska hann.

Það var vor og sól.......

Hann kvaddi mig með tárvotum augum,
á lestarstöðinni daginn þann,
er ástin brann svo heitt í mínum taugum
ég vissi að sæi aldrei aftur hann.

Mig dreymir oft um drenginn minn fríða
og þá er lífið ljúft í nálægð hans
hann hefur stækkað því árin þau líða
ég elska hann.

Hér upp á Íslandi græt ég í leynum
og leita að merkjum sem minna á hann
ég sé hans andlit í stokkum og steinum
ég elska hann.

Það var vor og sól........