Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Ástin bjarta
Innst í hjarta,
ástin bjarta,
er að starta mér,
það er þessi eina,
ástin sanna hreina,
sem aldrei kann að leyna sér.
Blóðið er á tampi,
bruni sem í hampi
blossandi lampi inn í mér.
Brosið hennar brosið,
beggja vara flosið,
ærir mig á einhvern veg.
Stilltu þig nú strengur,
stattu þig nú drengur,
þarna er hún svo ung og yndisleg.
Innst í hjarta,
ástin bjarta,
er að starta mér,
sjáðu þessa lokka,
allan þennan þokka,
það er sjokk ef illa fer,
steinar allir nikka,
stjörnuaugun blikka,
stelpan kvikk og létt á brún.
Það er þessi eina,
þú veist hvað ég meina,
það má reyna,
það má reyna,
það má reyna
segir hún.
Ási í Bæ
