Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Bátarnir á firðinum
Bátarnir á firðinum í logni lögðu frá,
en lítil alda strauk um fjörustein.
Við þeystum út í sólskinið á fjaðurmagna fák
í fögnuð vors og blóma tvö og ein.
Og blærinn strauk um rjóða kinn og lék um ljósa lokka
og lífið brosti okkur við í gleði’ og yndisþokka.
Við þeystum út í sólskinið á fjaðurmagna fák
í fögnuð vors og blóma tvö og ein.
Í djúpum smárahvammi við áðum eina stund,
en engum segjum við hvað gerðist þar.
Þú mast það eflaust góða að eftir þennan fund
vor ást til æviloka stofnuð var.
Spóinn vall í mýrinni, í kjarri þrestir þutu,
og þeir sem við, í sumarblíðu, lífs og ástar nútu.
Í djúpum smárahvammi við áðum eina stund,
en engum segjum við hvað gerðist þar.
Ragnar Jóhannesson
