Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Bella símamær
Hún Bella, Bella, Bella, Bella símamær,
er ekki alveg fædd í gær.
Hún Bella, Bella, Bella, Bella símamær,
hún kann á flestum hlutum skil,
og kallar; viðtalsbil.
Í ástarmálum gildir aðeins forgangshrað,
ég ætti best að vita það.
Í fjöri jafnt sem fegurð allar út hún slær,
hún Bella, Bella, Bella símamær.
Halló, halló, já hvað heitið þér?
Hvað viljið þér mér? Í bíó, ónei
ég þekki yður ei.
Halló, halló, nei ert þetta þú?
ég þekki þig nú,
þá semjum við frið,
þar slóstu mér við!
Og augun hennar eru bæði blá og djúp og skær,
hún brosir dátt og hlær.
Hún Bella, Bella, Bella, Bella símamær,
er ekki alveg fædd í gær.
Hún Bella, Bella, Bella, Bella símamær,
hún kann á flestum hlutum skil,
og kallar; viðtalsbil.
Í ástarmálum gildir aðeins forgangshrað,
ég ætti best að vita það.
Í fjöri jafnt sem fegurð allar út hún slær,
hún Bella, Bella, Bella Bella
Bella, Bella, Bella, Bella
Bella, Bella, Bella símamær.
Loftur Guðmundsson
