Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Borðsálmur
Það er svo margt, ef að er gáð,
sem um er þörf að ræða.
Ég held það væri heillaráð
að hætta nú að snæða.
Heyrið þið snáða!
Hvað er nú til ráða?
Það mun best að bíða og hlýða.
Á einum stað býr þrifin þjóð
með þvegið hár og skjanna.
Við húsbændurna holl og góð
sem hundrað dæmi sanna.
Hvað er að tarna?
Hvað sagðirðu þarna?
Mættum við fá meira að heyra!
Mér hefur verið sagt í svip,
að hún sig taki að yggla
og ætli nú að eignast skip,
þótt enginn kunni að sigla.
Við litlu má gera.
Látum svona vera.
Þeir ýtast þá með árum á bárum.
Nú eru líka níu menn,
sem nóttina' eiga að stytta,
þó varla nokkur viti enn,
hve vænlegt ráð þeir hitta.
Segðu' ekki lengur!
Seinna veit hvað gengur.
Mættum við fá meira að heyra!
Á einum stað býr einnig fólk
sem alltaf vantar brýni.
Það lifir þar á mysu og mjólk,
en mest á brennivíni.
Æ, hvaða skrambi!
Ætli' þeir standi' á þambi?
Mættum við fá meira að heyra!
Þar hefur verið sofið sætt
en sungið nokkru miður
og ullin fremur illa tætt,
en allra bezta fiður.
Ætli' það sé undur,
þótt á þá renni blundur!
Mættum við fá meira að heyra!
Þar eru blessuð börnin frönsk
með borðalagða húfu.
Og yfirvöldin, illa dönsk,
á annarri hverri þúfu.
Hættu nú, herra!
Hér mun koma verra,
sem þér er betra' að þegja um
en segja um.
Jónas Hallgrímsson
