Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Borgin helga

Mig dreymdi mikla drauma,
í drauminum ég stóð
hjá herrans helgidómi
og heyrði dýrðleg ljóð
er saklaus börnin sungu,
með sætum barnaróm,
og englar tóku undir
með unaðsfögrum hljóm.

Jerúsalem, Jerúsalem,
þinn kóngur kemur inn.
Hósanna, hæst í hæðum,
ó, heiðra konung þinn.

Nú breytast draumur fannst mér fljótt
þar framar enginn söng,
og hljótt nú börnin höfðu
og hver var stundin löng.
Ei sólin birtu sína gaf
um svala morgunstund,
er kom þar skuggi krossi af
á kalda föla grund.

Jerúsalem, Jerúsalem
heyr himnalofsönginn:
Hósanna, hæst í hæðum,
ó, heiðra konung þinn.

Nú aftur sýnin breyttist brátt,
mér birtist veröld ný.
Við hafið borgin helga
bar hátt við gullin ský.
Í dýrðaljóma lauguð öll
hún lýsti klár og hrein
og yfir sælum sálum þar
Guðs sólbjört ásýnd skein.
Hún þurfti engin önnur ljós
og hvorki tungl né sól
því Guð um alla eilífð þar
er öllum líf og skjól.

Jerúsalem, Jerúsalem,
syng um þá sælu tíð.
Hósanna, hæst í hæðum,
hósanna alla tíð.

Þýð: Pétur Sigurðsson