Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Braggablús
Ein í bragga, Magga, gægist út um gluggann,
bráðum sér hún Skugga-Baldur skunda hjá.
Enn einn túrinn, stúrinn, olíu á skúrinn
er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá.
Í vetur, betur gekk henni að galdra,
til sín glaða og kalda karla sem oft gáfu aur.
En Magga í sagga, situr ein í bragga,
á ekki fyrir olíu er alveg staur.
Fyrst kom Bretinn, rjóður, yndislega góðu
þá bjó hún Magga á Borginni í bleikum kjól.
Svo kom Kaninn, þaninn, kommúnistabaninn.
Þá kættist Magga ofsalega og hélt sín jól.
Svo færðist aldur, yfir eins og galdur
og ávallt verra og verra varð í karl að ná.
Nú er Magga, stúrin, því olíu á skúrinn
er erfitt nema fyrir fjandans aura að fá.
Magnús Eiríksson
