Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Capri Catarina
Komið allir Caprisveinar
komið, sláið um mig hring
meðan ég mitt kveðjukvæði
um Catarinu litlu syng.
Látið hlæja’ og gráta’ af gleði
gítara og mandólín.
Catarina, Catarina,
Catarina’ er stúlkan mín.
Í fiskikofa’ á klettaeynni
Catarina litla býr.
Sírenur á sundi bláu
syngja’ um okkar ævintýr.
Á vígða skál, í skuggum trjánna,
skenkti’ hún mér sitt Capri vín.
Catarina, Catarina,
Catarina, stúlkan mín.
Með kórónu úr Capriblómum
krýndi’ hún mig hinn fyrsta dag.
Af hæsta tindi hamingjunnar
horfðum við um sólarlag.
Þar dönsuðum við tarantella’
og teygðum lífsins guðavín.
Catarina, Catarina,
Catarina, stúlkan mín.
En nú verð ég að kveðja Capri
og Catarinu litlu’ í dag.
Horfa mun ég út til eyjar,
einn, um næsta sólarlag.
Grátið með mér gullnu strengir,
gítarar og mandólín.
Ó, Catarina, Catarina,
Catarina, stúlkan mín.
Davíð Stefánsson
