Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Dag í senn
Dag í senn, eitt andartak í einu,
eilífð náð þín, Faðir, gefur mér.
Mun ég þurfa þá að kvíða’ ei neinu
þegar Guð minn fyrir öllu sér.
Hann sem miðlar mér af gæsku sinni,
minna daga, skammt af sæld og þraut,
sér til þess að færa leið ég finni,
fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
Hann sem er mér allar stundir nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð.
Máttur hans er allri hugsun hærri
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg að Drottinn segir mér.
náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
Guð ég fæ af fyrirheitum þínum
frið og styrk sem ekkert buga má.
Auk mér trú og haltu huga mínum
helgum lífsins vegi þínum á
svo að ég af hjartaþeli hreinu,
hvað sem mætir, geti átt með þér
daginn hvern, eitt andartak í einu,
uns til þín í ljóssins heim ég fer.
