Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Dagar
Ljósið og skugginn, lifandi myndir
og litir sem breytast frá degi til dags.
Undarleg fegurð, einstakur heimur
andrá frá sólarupprás til sólarlags.
Heillandi tónlist, hjartsláttur lífsins
og haföldur brotna við klettótta strönd.
Sigling um voga, saltbragð í munni
sögur um framandi ævintýralönd.
Dagar, ykkur syng ég mína söngva,
sannfærður um það að mér brosi lífið við.
Dagar, þið sem framtíð mína felið,
farið aðeins hægar, ég tek af ykkur mið.
Spurning um aftur, spegill sem brotnar
og spádómur rætist um veður og vind.
Ljósið og skugginn, leiftur af draumi,
litir í nýjum ramma, ófullgerð mynd.
Dagar, ykkur syng ég mína söngva,
sannfærður um það að mér brosi lífið við.
Dagar, þið sem framtíð mína felið,
farið aðeins hægar, ég tek af ykkur mið.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
