Ein kona fram fyrir ekkjumann
22. mars, 2026Sjór loft og land
22. mars, 2026Raðið stólum í tvær raðir sem snúa stólbökunum saman. Stólarnir eiga að vera einum færri en þátttakendur. Allir raða sér í hring í kringum stólana en mega aldrei snerta þá með höndunum. Nú spilar einhver á hljóðfæri eða spilar tónlist í hljómtæki. Þá eiga allir að ganga af stað í kringum stólana, réttsælis. Eftir smástund þagnar tónlistin og þá eiga allir að setjast, en einn verður auðvitað útundan því stólarnir voru einum færri en þátttakendur. Sá sem er úr tekur einn stól úr röðinni um leið og tónlistin byrjar aftur og halarófan gengur af stað. Þannig er alltaf einn úr í hvert skipti sem tónlistin þagnar.
Góða skemmtun!
