Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ég held ég gangi heim

Ég held ég gangi heim, held ég gangi heim.
Ég held ég gangi heim, held ég gangi heim.
Þetta er búið að vera eitt brjálæðislegt geim.
Ég held ég gangi heim, held ég gangi heim.

Alveg skothelt kvöld og skemmtilegt fólk
sem skálaði í öllu öðru en mjólk,
kjálkaliðnum kjöftuðu sig allir úr
og Indriði var orðinn alveg hrikalega klúr.

Ég held ég gangi heim.........

Tvíburarnir æfðu í sófanum svig
og sungu lög eftir Bubba, Megas og mig.
Milliraddir flæddu úr munnunum út
og Matthildur lék undir á tóman flöskustút.

Ég held ég gangi heim.........

Laufey er að hringja á leigubíl,
hún vill losna sem fyrst við þennan skríl.
Eysteinn vildi ólmur aka af stað
en amma gamla í kjallaranum bannaði honum það.

Ég held ég gangi heim.........

Allir hlutir enda eins og þetta kvöld
allur bjórinn búinn og pítsan skítköld
en bíllyklarnir eru enn á sínum stað
og það er nú það er nú það er nú það.

Ég held ég gangi heim.........