Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ég man það enn

Ég man það enn, við sátum úti saman
um sumarkvöld í iðjagrænni hlíð.
Þú hafðir lokið leik þinn við og gaman
og lítill drengur þráði hvíldartíð.

Þú réttir til mín barnsins bljúgu hendur
og blessuð sólin kyssti vanga þinn.
Þú varst sem engill ofan til mín sendur
með yl og sól að gleðja huga minn.

Og síðan oft, er sá ég geislann skína,
um sumartíð, á litla kollinn þinn,
ég bað til Guðs að alla ævi þína
þú yrðir sami góði drengurinn.

Og þegar endar barnsins ljúfi leikur,
og lífsins þraut að höndum þínum ber,
Guð styrki þig svo megni vilji veikur
að velja það sem gott og fagurt er.

Freysteinn Gunnarsson