Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Einmana jurt
Langt úti á sandi sumarblómið fríða
sorgmæddu höfði drúpti bæði nótt og dag.
Með sinni fegurð skóginn vildi skrýða,
skynja hans frið og ró um sólarlag.
Það vissi um þá veröld
sem vaknar kjarri í
er fuglar glaðir flykkjast að
og fagna sumri' á ný.
Það var svo ungt og einmana
því enginn hér það sá.
Því bað það um að berast inn í skóginn.
Sumarið kom með sunnanvinda þýða,
sendi þá til að græða lífveranna sár.
Þá úti' á sandi hitti blærinn blíða
blómið – og sá þess hryggð og daggartár.
Og blærinn kvað við blómið
um bjarta sumarstund:
„Ég fræ þitt skal nú flytja inn
í fríðan skógarlund.“
Þá breiddi það út blöðin sín
og brosti sólu mót
er fjúka tóku fræin inn í skóginn.
Langt inni' í skógi skartar fríður lundur
skínandi jurt sem hlær mót veröldinni nú.
Nóttin er björt og náttúrunnar undur
nálgast við getum, bæði ég og þú.
Margrét Ólafsdóttir
