Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Stína litla

Harmaboðar heitir slá

hjartað þjáða’ og lúna;

liggur voða illa á

okkur báðum núna.

Hreina ást og hjartans yl

hefi’ ég ekki að bjóða,

en allt sem skárst er í mér til

áttu barnið góða.

Síðan fyrst ég sá þig hér

sólskin þarf ég minna;

gegnum lífið lýsir mér

ljósið augna þinna.

Leikur, hróðug, frjáls og frí,

fljóð með rjóðar kinnar,

sjóðheitt blóðið ólgar í

æðum góðu minnar.

Lánið blíða lið þér sitt

leggi stundir allar;

dyggðin prýði dagfar þitt

uns Drottinn burt þig kallar.

Kristján N. Júlíus