Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Fornt ástarljóð enskt
Helgum frá döggvum himnabrunns
mun hjartað þiggja fró,
en ætti eg guðakjörvíns kost
eg kysi full eitt þó:
um leyndan koss á bikars barm
eg bið, - en ekki vín;
þá dróttir kneyfa fagnafull,
mitt full sé augu þín.
Þér sendi eg eitt sinn únga rós
á úngri rósargrein,
vonaði hún mundi ei velkjast þá
né visna föl og ein;
þú barst að vitum góða gjöf
- og gafst mér hana á ný;
og síðan andar andi þinn
í ilmi frá blómi því.
Þýð: Halldór Laxness
