Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Gaggó Vest
Bjallan glymur gróft er hennar mál.
Gaggó-Vest hefur enga tildursál.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Kennarahræin eru kuldaleg í framan,
kannski þykir þeim hreint ekki gaman
að vakna í bítið í vetrarhríð
til að vitka draugfúlan æskulýð.
Bekkjastofur fyllast af bleikum fésum
Finnum og Jónum og Siggum og Drésum
handalögmál og hefðbundin læti
hundskisti til að fá ykkur sæti.
Segðu mér hvaða ár hengdu þeir Krist?
Í hvaða bandi spilar Frans þessi Lizt?
Einn týndi bókinni annar gleymdi að lesa.
Af hverju kallar hann okkur lúsablesa?
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest, Gaggó-Vest
gaf mér allt sem reyndist svo best
Kennari:
Kond uppað töflunni hvað sem þú heitir
þú minnir á kúk og öfgasveitir.
Afhverju er haus á herðum þínum?
Hlustaðu vel eftir orðum mínum:
Þú verður aldrei annað en rukkari, róni
eða þaðan af verra, rugguhestur og uxakerra.
Nú er kennarafundur um komandi fár
þeir kalla faraldurinn bítla-hár.
Frá Lifrapolli ljót berast org,
lýðurinn dansar um stræti og torg.
Var ekki nóg að fá tjútt og tvist?
Tæpast flokkast þessi öskur sem list?
Drottinn minn það er dansæfing í kvöld.
Djöfullinn sjálfur mun taka hér völd.
Allt í einu er Andrés litli orðinn stór
það gera hinir alræmdu bítla-skór.
Hér verður rokkað og rólað um allt
það rennur vatn undir hörund vort kalt.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest, Gaggó-Vest
gaf mér allt sem reyndist svo best
Ó kennari minn þá kveð ég þig nú
með kurt og pí og segi I love you.
Ich Liebe dich, Jet aime, ég elska þig.
Er nokkur von til þess að þú elskir mig?
Því eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest, Gaggó-Vest
gaf mér allt sem reyndist svo best.
Ólafur Haukur Símonarson
