Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Gamli skólinn
Góðan daginn, gamla gráa skólahús,
menntaveginn gekk ég reyndar aldrei fús.
Eina glæta daga langa, í tilverunni var,
þegar skólabjallan hringdi í frímínúturnar.
Þar stóð enska, landafræði, og íslenska,
danska, franska, leikfimi og latína.
Stóðum öll í röð á bak við rimlana
skólasöngur glumdi um alla gangana.
Misupplagðir, lúnir lærimeistarar,
okkur leiddu gegnum kennslustundirnar
flest við þekktum skammakrókinn og skulfum lítið eitt,
ef við illa lesinn kunnum ekki neitt.
Svo var tekið próf á miðju vorinu,
vinna mikil til að halda sporinu,
danska, franska, leikfimi og latína.
Lærdómurinn tók þá oft á taugina.
Gamli skólinn genginn er til náða um sinn.
Í gamla skólann leitar stundum hugur minn.
Ef ég gamlar skólaskræður í hirslum mínum finn.
Djúpt í huga mínum hrignir bjallan inn.
Magnús Eiríksson
