Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Blunda barnið góða
Blunda barnið góða,
ég bæri vöggu hljóða.
Svo þig dreymi dátt og blítt
dilla ég þér hægt og þýtt.
Blunda barnið góða.
Grein á víntré vænu
þú vex í skrúði grænu.
Út í heiminn brátt þig ber,
burt frá móðurhönd þú fer.
Grein á víntré vænu.
Gleym ei æsku – inni
og eigi móður þinni.
Mundu öll þín ævispor,
elsku barn, þitt faðir vor.
Gleym ei æsku inni.
Bjarni Jónsson
