Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Græna gengið

:/:Hei, græna gengið, uhh-ahh,
gerist umhverfisvænt, hér í Fossvogi:/:

Við flokkum ruslið sem að fellur til hér
og fáu hendum sem að nýtanlegt er.
Lífrænan úrgang við urðum á ný
og endurvinnslu sendum pappírinn í.

:/:Hei, græna gengið, uhh-ahh,
gerist umhverfisvænt, hér í Fossvogi:/:

:/: Á grænum hnetti reisum grænfánann nú
og græna daga höldum ég og þú.
Við skulum gleðjast hér við gaman og söng
og græna daga halda vordægrin löng:/:

:/:Hei, græna gengið, uhh-ahh,
gerist umhverfisvænt, hér í Fossvogi:/:

Margrét Ólafsdóttir