Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Grettir á Arnarvatnsheiði
Landið er dautt, nú ljóðar enginn strengur,
ljósið er brott sem flæddi’ um heiðageim.
Öræfasvanir syngja ekki lengur,
sumarsins gestir löngu flognir heim.
Hvergi sjást fjöllin bláma feldi búin,
brimhvítur gaddur hvílir nú á þeim.
Heiðin er sól og sumarfegurð rúin,
sótti’ hana vetur klakahöndum tveim.
Dregur nú nóttin að sér vængi víða,
varpast á ljóra morgunskíma grá.
Grettir hann þakkar, þreyttur af að bíða
þess að hann fengi bjarma’ af degi að sjá.
Ljósið var allt hans líf á sektarárum.
Ljósið eitt fær á hræðslu unnið bug.
Dagrenning föla blessar sál í sárum,
seitlar nú gleði’ um flóttamannsins hug.
Jón Björnsson
