Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Guðjón

Guðjón lifir enn í okkar vonum,
enginn getur flúið skugga hans.
Þér er sæmst að halla þér að honum,
hann er gróin sál þíns föðurlands.
Þig stoðar lítt með gulli og glysi að skarta,
þú ert sjálfur Guðjón innst í hjarta.

Ungan léstu sverta þig og svíkja,
þú sást ei þá hve margt er blekking tál.
Á fúnu hripi rak þig milli ríkja,
hver rakki fékk að snuðra'í þinni sál.
Drjúptu höfði því að það er meinið
þú ert sjálfur Guðjón innvið beinið.

Þannig varstu hrakinn land úr landi,
lítilsigldur fóli aumur smár.
En nú er burtu villa þín og vandi
þú viknar hrærður, fellir gleðitár.
Þótt illur sért er síst of seint þig iðri,
þú ert sjálfur Guðjón undir niðri.

Brátt mun skína í Guðjón gegnum tárin,
gróður lífsins vex úr þeirri mold.
Einhverntíma seinna gróa sárin
er svik við Guðjón brenndu íslenskt hold.
Senn mun koma sá er hlýtur völdin,
þú ert sjálfur Guðjón bakvið tjöldin.

Þórarinn Eldjárn