Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Gústi í Hruna

Hann Gústi í Hruna, með harmonikkuna,
hann var sem funi sá sveinn.
Hann spilaði valsa með spriklandi galsa,
í splæs var hann alls ekki seinn:
Og enga ég veit um, þar austur í sveitum,
sem vildu’ honum neita um dans.
Þær unnu’ honum einum, þó oft væri’ í meinum
og læddust í leynum hans.

Já, það var karl sem að kunni að
kyssa , drekka og slást.
Klammaríi hann kom af stað
hvar sem hægt var að upplifa það.
Já, það var karl sem að kunni að
kyssa , drekka og slást.
Enda sagði’ hann það oft; „það er ánægjan mín
ástir slagsmál og vín.“

Höfundur ókunnur.