Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Hafmeyjan
Það var föstudagsmorgunn, við settum upp segl
og sigldum skammt undan strönd
þegar skipstjórinn hafmey í sjónauka sá
með spegil og gullkamb í hönd.
Og hafaldan rís há
þegar herðir stormi á.
Fyrir sjómenn í reiða
er löngum fátt um skjól,
þegar landkrabbar skríða í ból, í ból, í ból.
Þegar landkrabbar niðu´rí skríða´ í ból.
Til orða tók skipstjóri okkar góða skips
og ekki var honum rótt:
Þessi sporðfætta mær hún boðar okkur böl,
Til botns við sökkvum í nótt."
Og hafaldan rís há...
Til orða tók stýrimaður okkar góða skips
fjarska orðprúður maður það var,
hann sagði: ,,Í Brooklyn hún bíður konan mín
helst til brátt fjölgar ekkjunum þar."
Og hafaldan rís há...
Til orða tók messi okkar góða skips
mjög svo óragur piltur það var:
„Kærustu ég á í Salem út við sjó
og sárt mun hún gráta mig þar.“
Og hafaldan rís há...
Til orða tók kokkur okkar góða skips
næstum elliær fauskur það var:
„Með pottum og pönnum ég lifað hef mitt líf
og langar á hafsbotn ekki par.“
Og hafaldan rís há...
Þrisvar í hring það hverfðist okkar skip,
þrisvar í hring okkar far.
Þrisvar í hring það hverfðist okkar skip,
svo hvarf það í regindjúpan mar.
Og hafaldan rís há...
Sigurður Þórarinsson
