Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Hin gömlu kynni

Hin gömlu kynni gleymast ei,
enn glóir vín á skál!
Hin gömlu kynni gleymast ei
né gömul tryggðamál.

Ó, góða, góða gamla tíð
með gull í mund!
Nú fyllum bróðir bikarinn
og blessum liðna stund.

Við leiddumst fyrst um laut og hól,
er lóan söng í mó.
En draumar svifu, söngur hvarf
úr Silfrastaða skóg.

Ó, góða, góða gamla tíð.................

Við óðum saman straum og streng
og stóðumst bylgjufall.
En seinna hafrót mæðu' og meins
á millum okkar svall.

Ó, góða, góða, gamla tíð...............

Þótt sortnað hafi sól og lund
ég syng und laufgum hlyn
og rétti mund um hafið hálft
og heilsa gömlum vin!

Ó, góða, góða gengna tíð
með gull í mund!
Nú fyllum bróðir bikarinn
og blessum liðna stund.

Árni Pálsson þýddi.