Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Hjólasöngur

Á hjóli, hjóli, hjóli margt ég fer,
á hjóli kemst ég næstum hvert sem er.
Ég hjóla úti’ á plani og hliðargötunum,
þó helst til mikið sé þar oftast nær af bílunum.
Já, ég hjóla og hjóla bæði heima’ og í skóla.
Fyrst ég lærði reglur hér sem að löggan kenndi mér
og mig langar til að rifja upp með þér.

(Hér á milli ræðum við um umferðarreglurnar)

Á hjóli, hjóli, hjóli margt ég fer,
á hjóli kemst ég næstum hvert sem er.
Ég hjóla úti’ á plani og hliðargötunum,
þó helst til mikið sé þar oftast nær af bílunum.
Já, ég hjóla og hjóla bæði heima’ og í skóla.
Núna reyndari ég er, því ég rifjaði’ upp með þér
allar reglurnar sem löggan kenndi mér.

Margrét Ólafsdóttir