Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Jói útherji

Öll þið eflaust þekkið Jóa,
hann var innherji hjá Val,
síðan útherji hjá Kr.
Hann var alveg “spinnegal”.
Því knattspyrna gerði hann oft svo æstan,
að honum engin héldu bönd,
og í einu af sínum háu spörkum
skaut hann niður önd.

Hann er þekktur fyrir sín þrumuskot
og þegar hann leikur knattspyrnu,
þá er það ekkert pot.
Og þetta æði á hug hans allan
og allur tíminn fer,
í að elta bolta, horfa á leiki,
og hrópa og sleppa sér.

Þó væri hann aðdáandi Hermanns,
hann aldrei skoraði,
fyrr en einn dag er hann trylltist
og í gegnum mark sitt boraði.
Í gegnum þvögu fram og aftur,
hann einlék og svo reið af spark,
það var óverjandi skot í stöng
og inn í eigið mark.

Í úrslitaleik um daginn
í ofsabaráttu
þá hann átti að taka vítaspyrnu
á síðustu mínútu
hann hugðist þrykkja honum beint í netið
en í stað þess stefndi hann
upp í stúkuna og sleikti menntamálaráðherrann.

Hann er þekktur….

Jafnvel upp í rúmi um nætur
hann ekki þolir við,
þá hann ólmast svo að konugreyið
hefur engan frið.
Í nótt hann versta grikk henni gerði
þá gaf hann henni spark
svo hún endasentist út á gólf
og hann æpti: ,,það var mark !”.

Hann er þekktur…..

Ómar Ragnarsson