Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Kannski er ástin
Kannski er ástin sumum sæluhús í svörtum norðanbyl.
Og hún vekur von um unað og hún veitir hjartans yl.
Ef erfiðleikar ógna og einsemd sækir heim
mun ástarminning ein úthýsa þeim.
Kannski er ástin eins og gluggi og opnar stofudyr
og hún býður þér í bæinn og betra líf en fyrr.
Og þótt þig beri langt af leið um leyndan villustíg
mun ástin vísa veg og vernda þig.
Og mjúk er ástin eins og ský en einnig hörð sem stál
og einum er hún vani en öðrum hjartans mál.
Og stundum endist ástin vel þótt ýmsum hverful sé
og hún er mörgum eitt og allt en öðrum varafé.
Kannski er ástin eins og sjórinn full af öfgum, köld og hlý
líkust eldi þegar úti er kalt og æstum þrumugný.
Ef allt að óskum gengur og eilífð bíður mín
mun endast alla tíð mín ást til þín.
Páll Bergþórsson
