Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Komdu í kvöld
Komdu í kvöld út í kofann til mín
þegar sólin er sest og máninn skín.
Komdu þá ein því að kvöldið er hljótt
og blómin öll sofa sætt og rótt.
Við skulum vera hér heima
og vaka og dreyma
vefur nóttin örmum hlíð og dal.
Komdu í kvöld úr í kofann til mín
þegar sólin er sest og máninn skín.
Jón Sigurðsson
