Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Komdu vina

Komdu vina komdu fljótt

komdu með að dansa í nótt

Sól hnígur hljótt

húmar á grundu skjótt

Nú við tengjum arm við arm

og við leggjum barm við barm

dans dunar ótt

dönsum í alla nótt.


Enn er of fljótt að fara
fljúgum og dönsum bara
svífandi sálir yngjum,
syngjum, klingjum.

Ekkert jafnast á við dans

aldrei látum verða stans

sól hnígur hljótt
hvíslandi góða nótt.