Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lát nikkuna hljóma
Lát nikkuna hljóma
Lát
nikkuna hljóma og danslagið duna
við dynjandi trommunnar slátt.
Því dansglaðir fætur um dansgólfið bruna
svo dillandi fjörugt og kátt.
Í
hálfdeyfðum ljósum og vanga við vanga
þau vefja hvort annað svo þétt,
og rómantík kvöldsins hún ríkir í taugum,
og rytmanum fylgja þau nett.
Nikkunnar
hrífandi hljómur
hríslast um taugar og blóð.
Húmsins heillandi slæður
hjúpast um drengi og fljóð.
Lifna
unaðar eldar,
ástar á líðandi stund.
Brennandi kossar á vanga og vör
og vonir um endurfund.
Pétur Aðalsteinsson
