Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Leit ég litla mús

Leit ég litla mús

læðast inn í hús.

Kötturinn að krækja’ í hana

kannske verður fús.

Músin fékk sér mat,

matinn við hún sat.

Þegar kisi þarna birtist

þaut hún o’n um gat.

„Heyrðu heillin smá”

hvæsti kisi þá,

„í þig hef ég heillin góða

hugsað mér að ná”.

Hopp og hopp og hí,

hann varð samt af því.

Þótt fljótur væri’ að finna gatið

festi’ hann sig í því.

Þórhallur Hróðmarsson