Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Lítið lag

Eitt fátækt ljóð við lítið lag
mér líður seint úr minni.
Það fæddist sumarfagran dag,
við fyrstu okkar kynni.
Og ljóðið, það er ljúft og milt
um litla stúlku og ungan pilt,
er höfðu saman hjörtun stillt
á heillabrautu sinni.

Og ljóðið mitt við lagið þitt
fær líf í höndum þínum.
Það hefur marga stund mér stytt
og stefnir huga mínum
að öllu því sem áður var,
er okkar fundum saman bar.
Það geymir mætar minningar
í munarómi sínum.

Og láttu litla ljóðið mitt
sem lengst í hug þér búa
og litla þýða lagið þitt
með listsemd að því hlúa.
Því ljóðið það er ljúft og milt
um litla stúlku og ungan pilt,
sem höfðu saman hjörtun stillt
og hvert á annað trúa.

Örnólfur í Vík