Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lorelei
Lorelei
Ég veit ekki' af hvers konar völdum
svo viknandi dapur ég er.
Ein saga frá umliðnum öldum
fer ei úr huga mér.
Það húmar og hljóðlega rennur
í hægviðri straumfögur Rín.
Hinn ljósgullni bjargtindur brennur,
þar blíðust kvöldsól skín.
Þar efst situr ungmey á gnúpi,
með andlitið töfrandi frítt,
og greiðir, í glitklæðahjúpi,
sitt gullhár, furðu sítt.
Með gullkamb hún kembir sér lengi
og kveður með annarlegt slag,
svo voldugt að við stenst engi,
sitt villta sorgarlag.
Og farmaður harmblíðu hrifinn
þá hlustar, svo varúðin þver
hann lítur ei löðrandi rifin
en ljúft til hæða sér.
Um fleyið og farmann er haldið
að fljótsaldan hvolfdi þeim ströng,
og því hefir Lórelei valdið
með leiðslu-töfrasöng.
Heinrich Heine – Steingrímur Thorsteinsson
