Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Lukta-Gvendur
Lukta-Gvendur
Hann veitti birtu á báðar hendur
um bæinn sérhvert kvöld
hann Lukta-Gvendur á liðinni öld.
Af gráum hærum glöggt var kenndur
við glampa’ af ljósafjöld
hann Lukta-Gvendur á liðinni öld.
Hann heyrðist ganga hægt og hljótt
um hverja götu fram á nótt
hans hjartasárin huldi bros á brá.
Ef ungan svein og yngismey
hann alein sá hann kveikti ei
en eftirlét þeim rökkurskuggann blá.
Í endurminning æskutíð
hann aftur leit er ástmey blíð
hann örmum vafði fast svo unga’ og smá.
Hann veitti birtu á báðar hendur
um bæinn sérhvert kvöld
hann Lukta-Gvendur á liðinni öld.
Eiríkur K. Eiríksson
