Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Næturljóð

Heyrðu, vinur, hví vakir þú enn,

veistu ekki að nóttin líður senn,

veistu ekki að brött er næsta brún,

brekkur margar en ekki rennslétt tún?

Jú, jú, jú, jú…………….

Ertu kannske að safna energí

eða langar þig í kelerí.
Kannske munar þig í meyjarkoss,

mannsins æðsta og lífsins stærsta hnoss.

Nei, nei, nei, nei………..

Ég ligg og heilann brýt um aðeins eitt,

því ekki’ er svigrúm til hugsanna breitt,

hvað skal gera við þessa hægri hönd

fyrst hérna verð ég að liggja upp á rönd.

Æ, æ, æ, æ…………….

Þú skalt bara brjóta hana af

því bráðum færðu vængi’ í hennar stað.

Mundu’ að forðast ber mæðu og rugl.

Á morgun verðurðu reglulegur fugl.

Ró, ró, ró, ró……….

H.J.H

En mundu vinur ef samt ei sofa mátt

að suma forlögin leika nokkuð grátt.

Og varast skalt þú til veðurs að gá

því verið getur að illa fari þá.

Tra, la, la, la……..

Því tótt þú kveljist og rísir upp á rönd,

með rifjaverki og dofin önnur hönd,

upp úr bólinu ei þig hreyfa skalt

því út við tjalddyrnar getur verið kalt.

Tra, la, la, la……….

Ó.B.G