Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Marína
Ef værir þú á leið til Ítalíu
og ætlaðir að hitta sæta píu.
Þá renndu við í Rómarstræti tíu
og reyndu að hringja og sjá til hvernig fer.
Því þar býr undur fögur yngismeyja
sem allir vilja lifa hjá og deyja.
En ekki skal ég núna um það segja
hve eftirlát hún mundi verða þér.
Marina Marina Marina
hún elskar þá alla jafn heitt.
Marina Marina Marina
og enginn samt getur hana veitt.
Þið farið kannski út að keyra
í kelerí og fleira.
En ef þú minnist svo á meira
hún mælir nei nei nei.
Ef koss þú um þig kærir
með kossum hún þig ærir.
En ef bónorð fram þú færir
hún fussar nei nei nei.
„Þéttir“
