Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Með bæninni kemur ljósið

Þegar næðir í mínu hjarta

og í huga mér engin ró,

og ég þrái að sjá hið bjarta

sem áður í mér bjó,

þá er lausnin alltaf nálæg,

ef um hana í auðmýkt bið,

og með bæninni kemur ljósið

og í ljósinu finn ég frið.

Og svo dapur er dagur vaknar,

dægurþrasið svo fjarri er.

Mundu þegar sálin saknar,

sólin skín hvergi nærri þér,

að í bæn er falinn máttur

er þig magnar þúsundfalt,

því með bæninni kemur ljósið

og í ljósinu lagast allt.

Ég vil mæta þessum degi,

fagna öllu sem fyrir ber.

Og ég bið þess að ég megi

njóta alls sem hann gefur mér.

Ef ég bið á hverjum degi

hef ég von sem aldrei deyr,

því með bæninni kemur ljósið

og í myrkri ég geng ei meir.