Vorþankar 
31. mars, 2026
Brennisteinsalda 
31. mars, 2026
Vorþankar 
31. mars, 2026
Brennisteinsalda 
31. mars, 2026

Tvær limrur 

Nú finnst mér ég vera að vaxa, 
því víst er ég farin að bagsa, 
við ærískan stíl, 
með fílósófíl, 
og fæði af mér limrur – í taxa. 
 
Henni Gvendólínu var gefið 
gæðatóbak í nefið. 
En þá fór í verra 
er þurfti hún að hnerra 
og þakið fauk út í sefið.