Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Óbyggðaferð

Sælt er að eiga sumarfrí,
sveimandi út um borg og bý,
syngjandi glaður aka í
óbyggðaferð í hópi.
:/:Ó-, ó-, óbyggðaferð:/:,
í óbyggðaferð í hópi.

Öræfasveitin er ekki spör
á afburðakjör fyrir fjörug pör,
í Skaftafellskógi er ástin ör
örvuð af heitum vörum.
:/:Ör-, ör-, öræfaferð:/:,
í öræfaferð við förum.

Í Kerlingarfjöll í hvelli öll
við keyrum í rútu með sköll og köll,
og förum á skíðum um freðna mjöll,
fim eins og belja á svelli.
:/:Kell-, kell-, Kerlingarfjöll:/:,
í Kerlingarfjöll í hvelli.

Þórsmörkina við þráum mest,
þangað menn dóla í langri lest
og festa svo bílinn fyrir rest
og fá til við konur mangað.

Í kjarrinu láta þeir flakka flest
í felunum þar er elskað mest.
Hafa með ættum við, held ég, prest,
ef hættum við okkur þangað.
:/:Þórs-, Þórs-, Þórsmerkurferð:/:
í Þórsmerkurferð við slórum.

Ómar Ragnarsson