Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Ofboðslega frægur

Hann er einn af þessum stóru,
sem í menntaskólann fóru
og sneru þaðan valinkunnir andans menn.
Ég sá hann endur fyrir löngu,
í miðri Keflavíkurgöngu,
hann þótti helst til róttækur og þykir enn.

Já hann er, enginn venjulegur maður,
og hann býr, í næsta nágrenni við mig,
og hann er alveg ofboðslega frægur,
hann tók í höndina á mér, heilsaði mér
og sagði: „Komdu sæll og blessaður“
(ég fór gjörsamlega í hnút)
Hann sagði: „Komdu sæll og blessaður“
(ég hélt ég myndi fríka út)

Hann hefur samið fullt af ljóðum,
alveg ofboðslega góðum,
sem fjalla aðallega um sálarlíf þíns innri manns.
Þau er ekki af þessum heimi,
þar sem skáldið er á sveimi
miðja vegu milli malbiksins og regnbogans.

Já hann er enginn venjulegur maður...

Við ræddum saman heima og geima,
ég hélt mig hlyti að vera að dreyma
(en ég var örugglega vakandi).
Mér fannst hann vera anzi bráður,
hann spurði hvort ég væri fjáður
og hvort ég væri allsgáður og akandi.

Já hann er enginn venjulegur maður...

Stuðmenn: Egill Ólafsson, Þórður Árnason, Jakob Frímann Magnússon