Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Þórsmerkurljóð

Þórsmerkurljóð

Ennþá geymist það mér í minni, María, María,
hvernig við fundumst í fyrsta sinni, María, María.
Upphaf þess fundar var í þeim dúr,
að ætluðum bæði í Merkurtúr.
María, María, María, María, María, María.

Margt skeður stundum í Merkurferðum, María, María,
mest þó ef Bakkus er með í gerðum, María, María.
Brátt sátu flestir kinn við kinn
og kominn var galsi í mannskapinn.
María, María, María, María, María, María.

Því er nú eitt sinn þannig varið, María, María,
að árátta kvensamra er kvennafarið, María, María.
Einhvern veginn svo æxlaðist,
að ég fékk þig í bílnum kysst.
María, María, María, María, María, María.

Ofarlega mér er í sinni, María, María,
að það var fagurt í Þórsmörkinni, María, María.
Birkið ilmaði, allt var hljótt,
yfir oss hvelfdist stjörnunótt.
María, María, María, María, María, María.

Ei við eina fjöl er ég felldur, María, María,
og þú ert víst enginn engill heldur, María, María.
Okkur mun sambúðin endast vel,
úr því að hæfir kjafti skel.
María, María, María, María, María, María.

Troddu þér nú inn í tjaldið hjá mér, María, María,
Síðan ætla ég að sofa hjá þér, María, María.
Svo örkum við saman vorn æviveg
er ekki tilveran dásamleg?
María, María, María, María, María, María.

      
Sigurður Þórarinsson