Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Pólstjarnan
Ennþá man ég það frá bernsku hve þú brostir hýr til mín
milli bæja þegar var ég einn í för.
Og mér fannst þú augað vera sem vakti yfir mér,
eini vinurinn sem gaf við spurning svör.
En ég hlaut að kveðja æskubyggð og heimþrá mín er sár,
og þó harðni skap í byl og frjósi tár.
Þegar myrkur byrgir landsýn er lögð á þóftu ár
og ég leita þín með bænarorð á vör.
En þú vakir allar nætur í vegalausum geim,
besti vinur þess er gengur myrkvað land,
og þú vísar mér til áttar um úfinn vetrarsæ
þegar öldur litlu fleyi boða grand.
Og þó dimmi fyrir sjónum og daprist von og trú
hátt í draumahimni bláum sindrar þú.
Og þú tengir milli heimþrár og hafnar gullna brú,
meðan hafið kyssir lágan fjörusand.
Kristján frá Djúpalæk
