Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Þrjú hjól undir bílnum
Þrjú hjól undir bílnum,
en áfram skröltir hann þó.
Öræfaþokan eltir dimm
með kolsvart él, sem kæfir vél,
en við kyrjum samt kát í næði og ró.
Við syngjum: Hibbidí-hæ og hibbidí – hí
svo bergmálar fjöllunum í.
Hérna rétt sunnan við hálsinn er sæluhús,
við gætum sofið þar öll, uns birtir á ný.
„Ó. Guðmundur, það er byrjað að snjóa.“
„Það passar, þeir spáðu sólskini.“
Tvö hjól undir bílnum,
en áfram skröltir hann þó.
Í sumarfrí á fjallaslóð,
fárviðri hvín, dagsljós dvín,
en við kyrjum samt kát í næði og ró.
Við syngjum: Hibbidí-hæ og hibbidí – hí
svo bergmálar fjöllunum í.
Hérna rétt sunnan við hálsinn er sæluhús,
við gætum sofið þar öll, uns birtir á ný.
„Ertu viss um að við séum á réttri leið.“
„Haltu þér saman, þú með þín vegakort.“
Eitt hjól undir bílnum,
en áfram skröltir hann þó.
Yfir grjót og urð, upp í hurð,
með hikst og hóst í hlíðargjóst.
En við kyrjum samt kát í næði og ró.
Við syngjum: Hibbidí-hæ og hibbidí – hí
svo bergmálar fjöllunum í.
Hérna rétt sunnan við hálsinn er sæluhús,
við gætum sofið þar öll, uns birtir á ný.
„Ó, Guðmundur, það fossar vatn um allan bílinn.“
„Þegiðu kona og lokaðu gluggnum.“
Ekkert hjól undir bílnum,
hann áfram skröltir ei meir.
Hann liggur á hlið
í hyldjúpri á,
straumurinn gjálfrar
gluggum á.
En við kyrjum á kafi í vatni og leir:
Við syngjum: Hibbidí-hæ og hibbidí – hí
svo bergmálar fjöllunum í.
Hérna rétt sunnan við hálsinn er sæluhús,
við gætum sofið þar öll, uns birtir á ný.
Ómar Ragnarsson
