Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Sagan af Siggu gömlu
Þetta er sagan af Siggu gömlu
sem seldi blöðrur á hátíðum.
Fullar af gasi gular, rauðar,
grænar, bláar í smáspottum.
Uns dag einn hún tók með sér
of margar blöðrur,
samt vildi’ hún ei sleppa
en sveif upp frá jörðu.
Hátt yfir húsunum sveif hún Sigga
og stefndi beint upp í himininn.
Fuglarnir sögðu’ henni: Farðu niður
og sumir settust á pilsfaldinn,
uns kom hún að tunglinu
og tunglið það hló,
það hafði’ aldrei séð svona götótta skó.
Og tunglið það rétti fram gular hendur
og greip í Siggu þar sem hún flaug,
setti’ hana á magann og spurði hvort að
hún væri amerísk galdraflaug.
En Sigga hún kjökraði
mig langar niður,
ég ætlaði alls ekki að ónáða yður.
Og tunglið það gaf henni stein í fangið
og sagði: Stökktu nú niður á við.
Og Sigga hún sveif eins og kall í fallhlíf
og kom loks niður á mitt torgið.
Og fólkið það kallaði’ og æpti af kæti
svo Sigga var hálfhrædd við öll þessi læti.
Þetta var sagan af Siggu gömlu
sem seldi blöðrur á hátíðum
Jón Hallur
