Söngtextasafn

Það  má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra. 

← Til baka í textasafn

Saman stöndum við

Saman stöndum við sterkur her,

hlið við hlið í krafti’ og kærleik hans.

Markmið okkar er eitt,

að hefja upp Jesú nafn

svo heimur fái séð; hann lifir í dag.

Við lyftum Jesú nafni hátt,

við lyftum Jesú nafni hátt,

svo heimur fái séð; Hann lifir í dag.

Guðrún J. Tómasdóttir

Bæn

Þegar ungur ég var

og alls óhræddur við

hætturnar sem lífið faldi mér.

ég braust einn gegnum her

sem að lagði að mér,

ég var sár, þú komst og reistir mig.

Ég fann leiðina á ný

og fékk styrk minn á því

er þú stóðst við hliðina á mér.

Núna stend ég á því

sem að þú lagðir í gjöfina

sem að okkur færðir,

mér og öllum sem á eftir komu

og lærðu það hjá þér.

Nú sé ég dag á ný.

Hvert sem ég fer, ertu hér.

Þú ert með mér

þó að ég sé einn á ferð

gegnum dimma dali, fer.

Hvar sem ég er ertu mér

viti sem að merkir land í ólgusjó

þú stýrir mér í var

og ég finn þig aftur þar.

Í bæn minni sæki ég

eldinn sem þarf

til að lýsa upp hjá mér nóttina.

Í þann mund sem ég sé

að hún lokast á ný

leiðin þín sem alltaf virtist greið.

kemur loginn frá þér

og hann kallar á mig

og nú sé ég veginn fram á við.

Núna stend ég á því

sem að þú lagðir í gjöfina

sem að okkur færðir,

mér og öllum sem á eftir komu

og lærðu það hjá þér.

Nú sé ég dag á ný.

Hvert sem ég fer, ertu hér.

Þú ert með mér

þó að ég sé einn á ferð

gegnum dimma dali, fer.

Hvar sem ég er ertu mér

viti sem að merkir land í ólgusjó

þú stýrir mér í var

og ég finn þig aftur þar.

Einar Bárðarson