Söngtextasafn
Það má segja að söngtextar hafi verið ær og kýr Margrétar. Fyrir utan að búa til eigin texta safnaði hún saman miklum fjölda texta eftir aðra höfunda sem hún birti á vefnum sínum og varð safnið fljótt vinsælt til uppflettinga. Textarnir endurspegla vel hversu fjölbreyttan smekk Margrét hafði á tónlist, allt frá barnagælum og trúarkvæðum til gamalla dægurlaga og nýrri. Safnið hennar er hér birt nánast óbreytt eins og það var þegar Margrét hætti að uppfæra vefinn sinn í kring um 2015. Höfunda er getið eins og hægt er og eru ábendingar um höfunda þar sem þá vantar vel þegnar og eins ef textar eru hér birtir í óþökk höfunda þeirra.

Dægurlagasöngkonan Margrét
Sannleikurinn
Ef einhvern tíma læðist í huga þinn
að lífið hafi engan tilgang
þá skaltu hugsa til mín.
Og seinna muntu sjá að svo er ei
og þú numt finna hamingjuna,
þá skal ég hugsa til þín.
Því lífið hefur kennt mér að
lifa bara fyrir það
sem flestir telja orðin ein.
Leita hærra, finna svar,
losa um allar spurningar.
Þar leynist sannleikurinn
Enginn getur án hans lifað
og án hans getur enginn starfað,
slíkur er sannleikurinn.
Því segi ég, vinur, leita þú hans
og þú munt finna hamingjuna,
þannig er sannleikurinn.
Það læðist ekki lengur í huga minn
að lífið hafi engan tilgang,
fundinn er sannleikurinn.
Því ég hef þegar lært að svo er ei,
ég hef fundið hamingjuna,
Jesús er sannleikurinn.
Hjalti Gunnlaugsson
